Íris Bryndís Guðnadóttir, tannsmiðameistari og tanntæknir
Allir vilja hafa hreinan og heilbrigðan munn. Það stuðlar að sjálfsvirðingu einstaklingsins og skiptir þá ekki máli hvort um er að ræða unga eða aldna, tennta eða tannlausa
Slímhúð munnsins er viðkvæm og hún þarfnast umhyggju og ýtrasta hreinlætis ef halda á henni heilbrigðri og koma í veg fyrir sýkingar t.d. sveppasýkingar, slímhúðabólgur, og tannholdsbólgur
Tannsýkla er gerlaskán sem myndast úr matarleifum, bakteríum, munnvatni og dauðum húðfrumum. Hún sest á tennur, bæði fastar tennur og gervitennur. Tannsýkla veldur algengustu munnsjúkdómum, tannátu, sveppasýkingu og tannholds -og slímhúðarbólgum.
Undir gervigómum eru heppileg skilyrði fyrir munnsjúkdóma að þrífast og dafna, ef ekki er gætt ýtrasta hreinlætis.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að slímhúðabólgur finnast hjá um þ.b. 50% þeirra einstaklinga sem nota gervitennur.
Meðalaldur gervitanna á íslandi er um það bil 18 ár og margir eru með 30 ára gamlar gervitennur.
Æskilegt er að láta líta eftir gervitönnum einu sinni á ári og endurnýja þær á 6-10 ára fresti.
Sýnt hefur verið fram á samband milli illa passandi gervitanna með röngu biti og útbreiðslu slímhimnubólgu “protesestomatit” Talið er að stöðugur núningur vegna óstöðugleika og ójafnvægis tanngómsins auka á ertingu og geri slímhimnuna móttækilegri fyrir sýkingu.
Í undantekningartilfellum geta sömu einkenni komið fram vegna ofnæmis fyrir plastefni tanngómsins en það er mjög sjaldgæft.
Slæm tann- og munnhreinsun stuðlar að sveppasýkingingum og slímhimnubólgum.
Það hefur sýnt sig að tannhreinsun er almennt lakari hjá þeim sem eru með slímhúðarbólgur en hjá þeim sem eru með fríska og heilbrigða slímhúð og ef tekin er upp regluleg og góða tann- og munnhreinsun hverfur slímhúðarbólgan oft.
Það er einnig mikilvægt að nærast á hollum og góðum mat og þeir sem það gera hafa um leið heilbrigðari slímhúð sem er síður móttækileg fyrir bólgum og sáramyndunum.
Munnangur getur meðal annars stafað af járnskorti og skorti á vítamínum t.d. B12 og einnig geta hormónabreytingar valdið munnangri.
Tengsl eru milli reykinga og munn- og tannsjúkdóma. Þegar reykurinn fer gegnum munninn snertir hann bæði tennur og slímhúð munnsins, ekki bara þegar reykurinn er sogaður inn heldur einnig þegar honum er blásið út aftur. Því meira sem reykt er, því meiri verður skaðinn. Reykingar minnka bragðskynið, lita tennur, valda andremmu og sár gróa seinna og verr. Slímhúð bólgnar og tennur geta losnað. Reykingar eru stærsti áhættuþáttur munnholskrabbameins. Reykingarmenn eru í fjórum sinnum meiri hættu á að fá munnholskrabbamein en þeir sem ekki reykja.
Ef reykingum er hætt. minnka líkur á sjúkdjómum í munnholi og tennur hætta að litast.
Mynd af öskubakka.
Munnvatnið heldur munnholi og hálsi rökum og stuðlar þannig að heilbrigði. Í munnvatninu eru bakteríudrepandi efni sem hjálpa okkur að verjast sýkingum.
Margir finna fyrir munnþurrk. Ýmsar ástæður geta verið fyrir honum t.d. mikill lofthiti, streita, vítamínskortur, koffein, alkahólsneysla, sjúkdómar og lyfjanotkun
Munnþurrkur getur haft víðtækar afleiðingar. Bakteríur, veirur og sveppir eiga auðveldara með að sýkja munnholið þegar munnvatnið er ekki til varnar.
Munnþurkur veldur því að erfiðara er að tala, tyggja og halda gervitönnunum á sínum stað.
Slímhúð munnsins þynnist oft með aldrinum, þornar springur og verður viðkvæm. Svo virðist sem munnvatn breytist líka oft með aldrinum.
Flúortyggigummí eða sykurlausar sogtöflur geta örvað munnvatnsrennslið svo og aukin vatnsneysla. Fyrir þá sem eru með gervitennur eru sérstök hreinsiefni fyrir gervitennur úr náttúrulegum efnum sem auka munnvatnsrennsli.
Mikilvægt er að hreinsa gervitennur og munn með góðum hreinsiefnum sem sérstaklega eru framleidd fyrir gervitennur og skaða ekki glansandi mjúka áferð gervitannananna. Þessi hreinsiefni halda frá óæskilegum bakteríum og veirum sem geta valdið sýkingu í slínhúð munnnsins.
Bakteríuskán og munnvatn mynda tannstein sem oft sest á þá fleti sem eru hrjúfir og rispaðir, eða ekki nægjanlega vel hreinsaðir. Hægt er að fá sérstök hreinsiefni sem leysa upp tannstein og litarefni.
Nauðsynlegt er að bursta gervitennur og munnhol minnst tvisvar á dag með þar til gerðum hreinsiefnum, Ekki er nægjanlegt að leggja gervitennurnar í bleyti í freyðitöflur. Það getur verið gott, samhliða tannburstun, en kemur ekki í staðin fyrir reglulega tannburstun sem þarf að framkvæma minnst tvisvar á dag.
Fljótandi handsápa var notuð þegar hreinsiefni fyrir gervitennur voru ófáanleg, en sá tími er liðinn og í dag þarf enginn að hreinsa munn og gervitennur með handsápu, eins og ráðlagt er á heimasíðu Tannlæknafélagsins og Tannheilsuvef Heilbrigðisráðuneytisins.
Í öllum helstu apótekum landsins fást góð hreinsiefni fyrir munn og gervitennur, framleidd úr náttúrulegum efnum eins og allovera, tea tree,og fl. Þessi efni eru framleidd í samvinnu við fagfólk í tannheilsu og tryggja hámarks árangur, . Tea tree olían hefur verið rannsökuð og reynd af hópi vísindamanna og lækna. Olían vinnur á allt að 13 mismunandi bakteríum, 27 sveppum, m.a.Candía Albicans, Herpes og fl. sem eru algengir kvillar í munni
Náttúrulegar olíur efnanna græða sár, drepa sveppi eru deyfandi, kælandi, sótthreinsandi og örva munnvatnsrennsli. Í efnunum er einnig að finna B-og E- vítamín sem styrkja blóðrennslið og flýta fyrir endurnýjun á slímhimnufrumunum.
Ef slímhúð munnsins er hrein og gervitönnum haldið hreinum og í stöðugu og jöfnu biti með eðlilegu eftirliti og endurnýjun er það ágæt forvörn til að koma í veg fyrir sjúkdóma í munnholi.
Samkvæmt lögum nr.109/2000 geta þeir sem þess óska farið beint til tannsmiðs og fengið gervitennur.