Gervitennur þarfnast umhyggju.

Iris Bryndís Guðnadóttir,

Tannsmíðameistari með klínisk réttindi og tanntæknir.

Gervitennur þarfnast umhyggju.

 

Allir vilja  hafa hreinan og heilbrigðan munn. Það stuðlar að sjálfsvirðingu einstaklingsins og skiptir þá ekki máli hvort um er að ræða unga eða aldna, tennta eða tannlausa

Til að svo geti verið þarf að gæta ýtrasta hreinlætis. Tannsýkla er gerlaskán,  hún sest á tennur, bæði fastar tennur og gervitennur. Tannsýkla veldur algengustu munnsjúkdómum, tannátu, sveppasýkingu  tannholds -og slímhúðarbólgum.

Undir gervigómum eru einnig heppileg skilyrði fyrir munnsjúkdóma að þrífast og dafna,

Rannsóknir hafa leitt í ljós að slímhúðabólgur finnast hjá um þ.b. 50%  þeirra einstaklinga sem nota gervitennur, og að samband er  milli illa passandi gervitanna og  slímhúðabólgu

Einnig eru tengsl milli reykinga og munn- og tannsjúkdóma.. Reykingar  lita tennur, valda andremmu og sár í munni gróa seinna og verr.  Slímhúð bólgnar og tennur geta losnað. Reykingar eru stærsti áhættuþáttur munnholskrabbameins.

Munnþurrkur getur haft víðtækar afleiðingar, bakteríur, veirur og sveppir eiga auðveldara með að sýkja munnholið þegar munnvatnið er ekki til varnar.

Erfiðara er að tala, tyggja og halda gervitönnunum á sínum stað.

Slímhúð munnsins þynnist oft með aldrinum, þornar springur og verður viðkvæm. Það er því mikilvægt  að hreinsa gervitennur og munn með góðum hreinsiefnum sem  eru framleidd  sérstaklega fyrir þær og skaða ekki glansandi mjúka áferð  þeirra .Maxil tann

hreinsiefni halda frá óæskilegum bakteríum og veirum sem geta valdið sýkingu í munnholi.

.

Bakteríuskán og  munnvatn mynda tannstein sem oft  sest á þá fleti gervitanna sem eru hrjúfir og rispaðir, eða ekki nægjanlega vel hreinir. Vikuleg hreinsun á gervitönnum með Maxil tannsteinshreinsir (Tannsteinsfjerner) er því æskileg , þá nær tannsteinn og litarefni  t.d. úr kaffi og tóbaki ekki að festast við gervigómana og þeir haldast glansandi og hreinar.

Nauðsynlegt er að bursta gervitennur og munnhol minnst tvisvar á dag með Maxil gervitannahreinsir (Proteserens)

Í dag þarf enginn að hreinsa munn  og gervitennur með handsápu eins og áður var. En í venjulegu tannkremi er slípimassi sem er skaðlegur fyrir gervitennur.

 

Í öllum helstu apótekum landsins fást Maxil hreinsiefni fyrir munn og gervitennur, þau eru framleidd úr náttúrulegum efnum eins og alloe vera, te tré, lavendil, kamillu, salvíu, krúsmyntu, japanskri piparmyntu og myrru. Maxil hreinsar og sótthreinsar bæði gervitennur og munn. Maxil er framleitt í samvinnu við tannheilsufagfólk í Danmörku  það tryggir  hámarksárangur,. Te-tré olían hefur verið rannsökuð og  reynd af hópi vísindamanna   og lækna hún vinnur á allt að 13 mismunandi bakteríum, 27 sveppum, m.a.Candía Albicans, Herpes og  fl. sem eru algengir kvillar í munni

Náttúrulegar olíur efnanna græða sár, drepa sveppi eru deyfandi, kælandi, sótthreinsandi og örva munnvatnsrennsli. Í efnunum er einnig að finna  B- og E- vítamín sem styrkja blóðrennslið og flýta fyrir endurnýjun á slímhimnufrumunum. Þau berast með plastefni tanngómsins til slímhúðar munnsins.

Ef gervitennur eru hreinar  og  þeim haldið  í stöðugu og jöfnu biti með eðlilegu  eftirliti  og endurnýjun er það ágæt forvörn og kemur í veg fyrir sjúkdóma í munnholi.

 

Samviskusamleg munn og gervitannahreinsun er mikilvæg bæði fyrir þig og þá sem þú umgengst, Léleg munnhreinsun þýðir að matarleifar liggja og gerjast í munninum, Afleiðing getur verið andremma, áblástur, frunsur , sýkingar og sveppir.
Lámarkskrafa :

1.Skolið gervitennur og munn eftir hverja máltíð,

2, Burstið vandlega slímhúð og gervitennur tvisvar á dag með Maxil hreinsiefnum,

 

 

Lög nr 109/2000  heimila tannsmiðameistara með klínisk réttindi að taka mát og smíða gervitennur fyrir sína viðskiptavini . Þá eru  gervitannanotandinn  og tannsmiðurinn í persónulegu sambandi án milliliðs.

 

Slímhúð munnsins þarfnast umhyggju. 

Íris Bryndís Guðnadóttir, tannsmiðameistari og tanntæknir

Allir vilja  hafa hreinan og heilbrigðan munn. Það stuðlar að sjálfsvirðingu einstaklingsins og skiptir þá ekki máli hvort um er að ræða unga eða aldna, tennta eða tannlausa

 

Slímhúð munnsins er viðkvæm og hún þarfnast umhyggju og ýtrasta hreinlætis ef halda á henni heilbrigðri  og koma í veg fyrir  sýkingar  t.d. sveppasýkingar, slímhúðabólgur, og tannholdsbólgur

 

Tannsýkla er gerlaskán sem myndast úr matarleifum, bakteríum, munnvatni og dauðum húðfrumum. Hún sest á tennur, bæði fastar tennur og gervitennur. Tannsýkla veldur algengustu munnsjúkdómum, tannátu, sveppasýkingu og tannholds -og slímhúðarbólgum.

 

Undir gervigómum eru heppileg skilyrði fyrir munnsjúkdóma að þrífast og dafna, ef ekki er gætt ýtrasta hreinlætis.

Rannsóknir hafa leitt í ljós að slímhúðabólgur finnast hjá um þ.b. 50%  þeirra einstaklinga sem nota gervitennur.

Meðalaldur gervitanna  á íslandi er  um það bil 18 ár og margir eru með 30 ára gamlar gervitennur.

Æskilegt er að láta líta eftir gervitönnum einu sinni á ári og  endurnýja þær á 6-10 ára fresti.

Sýnt hefur verið fram á samband milli illa passandi gervitanna með röngu biti og  útbreiðslu slímhimnubólgu “protesestomatit”  Talið er að stöðugur núningur vegna óstöðugleika og  ójafnvægis tanngómsins auka á ertingu og geri slímhimnuna móttækilegri fyrir sýkingu.

Í undantekningartilfellum geta sömu einkenni komið fram vegna ofnæmis fyrir plastefni tanngómsins en það er mjög sjaldgæft.

Slæm tann- og munnhreinsun stuðlar að sveppasýkingingum og slímhimnubólgum.

Það hefur sýnt sig að tannhreinsun er almennt lakari hjá þeim sem eru með slímhúðarbólgur en hjá þeim sem eru með fríska og heilbrigða slímhúð og ef tekin er upp regluleg og góða tann- og munnhreinsun hverfur slímhúðarbólgan oft.

Það er einnig mikilvægt að nærast á hollum og góðum mat og þeir sem það gera hafa um leið heilbrigðari slímhúð sem er síður móttækileg fyrir bólgum og sáramyndunum.

Munnangur getur meðal annars stafað af járnskorti og  skorti á vítamínum t.d. B12 og einnig geta hormónabreytingar valdið munnangri.

 

Tengsl eru milli reykinga og munn- og tannsjúkdóma. Þegar reykurinn fer gegnum munninn snertir hann bæði tennur og slímhúð munnsins, ekki bara þegar reykurinn er sogaður inn heldur einnig þegar honum er blásið út aftur. Því meira sem reykt er, því meiri verður skaðinn. Reykingar minnka bragðskynið, lita tennur, valda andremmu og sár gróa seinna og verr.  Slímhúð bólgnar og tennur geta losnað. Reykingar eru stærsti áhættuþáttur munnholskrabbameins.  Reykingarmenn eru í fjórum sinnum meiri hættu á að fá munnholskrabbamein en þeir sem ekki reykja.

Ef reykingum er hætt. minnka líkur á sjúkdjómum í munnholi og tennur hætta að litast.

Mynd af öskubakka.

 

Munnvatnið heldur munnholi og hálsi rökum og stuðlar þannig að heilbrigði. Í munnvatninu eru bakteríudrepandi efni sem hjálpa okkur að verjast sýkingum.

Margir finna fyrir munnþurrk.  Ýmsar ástæður geta verið fyrir honum t.d. mikill lofthiti, streita, vítamínskortur, koffein, alkahólsneysla, sjúkdómar og lyfjanotkun

Munnþurrkur getur haft víðtækar afleiðingar. Bakteríur, veirur og sveppir eiga auðveldara með að sýkja munnholið þegar munnvatnið er ekki til varnar.

Munnþurkur veldur því að erfiðara er að tala, tyggja og halda gervitönnunum á sínum stað.

Slímhúð munnsins þynnist oft með aldrinum, þornar springur og verður viðkvæm.  Svo virðist sem munnvatn breytist líka oft með aldrinum.

 

Flúortyggigummí eða sykurlausar sogtöflur geta örvað munnvatnsrennslið svo  og aukin vatnsneysla. Fyrir þá sem eru með gervitennur eru sérstök  hreinsiefni fyrir gervitennur úr náttúrulegum efnum sem   auka munnvatnsrennsli.

 

Mikilvægt er að hreinsa gervitennur og munn með góðum hreinsiefnum sem sérstaklega  eru framleidd fyrir gervitennur og skaða ekki glansandi mjúka áferð  gervitannananna. Þessi hreinsiefni halda frá óæskilegum bakteríum og veirum sem geta valdið sýkingu í slínhúð munnnsins.

 

Bakteríuskán og munnvatn mynda tannstein sem oft sest á þá fleti sem eru hrjúfir og rispaðir, eða ekki nægjanlega vel hreinsaðir. Hægt er að fá sérstök hreinsiefni sem leysa upp tannstein og litarefni.

Nauðsynlegt er að bursta gervitennur og munnhol minnst tvisvar á dag með þar til gerðum hreinsiefnum, Ekki er nægjanlegt að leggja gervitennurnar í bleyti í freyðitöflur. Það getur verið gott, samhliða tannburstun, en kemur ekki í staðin fyrir reglulega tannburstun sem þarf að framkvæma minnst tvisvar á dag.

Fljótandi handsápa var notuð   þegar hreinsiefni fyrir gervitennur voru ófáanleg,  en sá tími er liðinn og í dag þarf enginn að hreinsa munn  og gervitennur með handsápu, eins og ráðlagt er á heimasíðu Tannlæknafélagsins og Tannheilsuvef Heilbrigðisráðuneytisins.

 

Í öllum helstu apótekum landsins fást góð hreinsiefni fyrir munn og gervitennur, framleidd úr náttúrulegum efnum eins og allovera, tea tree,og  fl. Þessi efni eru framleidd í samvinnu við fagfólk í tannheilsu og tryggja hámarks árangur, . Tea tree olían hefur verið rannsökuð og  reynd af hópi vísindamanna   og lækna. Olían vinnur á allt að 13 mismunandi bakteríum, 27 sveppum, m.a.Candía Albicans, Herpes og fl. sem eru algengir kvillar í munni

Náttúrulegar olíur efnanna græða sár, drepa sveppi eru deyfandi, kælandi, sótthreinsandi og örva munnvatnsrennsli. Í efnunum er einnig að finna B-og E- vítamín sem styrkja blóðrennslið og flýta fyrir endurnýjun á slímhimnufrumunum.

Ef slímhúð munnsins er hrein og gervitönnum haldið hreinum og í stöðugu og jöfnu biti með eðlilegu  eftirliti og endurnýjun er það ágæt forvörn til að koma í veg fyrir sjúkdóma í munnholi.

Samkvæmt lögum nr.109/2000 geta þeir sem þess óska farið beint til tannsmiðs og fengið gervitennur.

 

Fallegt bros með þitt þriðja tannsett

Íris Bryndís Guðnadóttir. klíniskur tannsmíðameistari og tanntæknir

Hvern einasta dag erum við að slíta tönnunum okkar. Slitið veldur því meðal annars að mjög fáar manneskjur hafa sínar náttúrulegu tennur allt lífið. Þrátt fyrir góða tannhirðu  geta sumar tennur hreinlega slitnað upp.

Gervitennur

Að fá gervitennur upplifir fólk mjög mismunandi frá einni manneskju til annarrar. Sumir hafa alls  engin vandamál við að venjast gervitönnum en aðrir hafa í stuttan tíma, tal og tyggingarörðugleika .

Það er mikilvægt að gera nauðsynlegar lagfæringar  þannig að fólki líði sem best með gervitennurnar og hafa síðan reglulegt eftirlit með tönnunum einu sinni á ári.

Mismunandi er hversu hratt gómurinn rírnar hjá einstaklingi en viðmiðunarregla er að endurnýja gervitennur á u.þ.b. 6-8 ára fresti.

Gangi fólk alltof lengi með gamlar og illa passandi gervitennur getur það haft slæm áhrif á  gómstæðið og  erfitt getur verið að fá nýjar tennur til að sitja vel.

 

Yfir 70% 65 ára og eldri eru tannlausir

Margt eldra fólk hefur ekki haft tækifæri til að fá tannviðgerðir á sínum yngri árum. Sérstaklega áttu þeir  sem bjuggu  úti á landi í erfiðleikum með að fá tannlæknaþjónustu. Það eru því margar ástæður fyrir því að þeir eldri eru tannlausir eða hafa fáar tennur eftir í munninum.

Skólatannlækningar voru aðeins á fáum stöðum og fæstir sem komnir eru yfir 60 ára aldur höfðu reglulega tannskoðun í æsku.

 

Á að draga út síðustu tennurnar?

Margir halda að þegar aðeins fáar tennur eru eftir í munninum sé best að láta taka þær allar.

Svo þarf ekki að vera. það getur verið til bóta að hafa stakar tennur og fá tannpart, hann situr oft fastari en heilgómur og fyllir ekki eins mikið í munninn.

Ýmsar aðrar lausnir geta komið til greina þegar um skörð eða bil er að ræða t.d. föst tanngervi, krónu og brú.

Til að smíða brú þarf að slípa burtu hluta af náttúrulegum tönnunum sitthvoru megin við skarðið svo hægt sé að brúa bilið. Til að smíða krónu þarf líka að slípa hluta af tönninni. Til að þetta sé hægt verða rætur tannanna  að vera nokkuð heilbrigðar svo hægt sé að byggja á þeim. Þessi valkostur er því ekki alltaf til staðar.

 

 

Hvað er partgómur?

Ef fjarlægja þarf nokkrar tennur, er partur oft settur í bilið. Partgómur getur verið stálgómur eða plastgómur með mismörgum tönnum á. Það er mikilvægt að hann falli vel að þeim tönnum sem fyrir eru í munninum, að hann virki vel í tyggingu og líti eðlilega út. Partgómur getur verið einföld lausn á náttúrulegu vandamáli.

 

Er auðvelt að hafa heilgóm?

Flestir eru fljótir að tileinka sér notkun á efrigóm. En oft getur verið vandamál að halda neðrigóm stöðugum.

Efri tanngómurinn sogast oftast fastur upp í gómhvelfinguna. En í neðri góm liggur tanngómurinn laus á rima sem getur verið misgóður til að halda honum. Það er því mikilvægt að tanngómurinn falli vel og  sé þannig lagaður að kinnar og tunga hjálpi til við að halda gómnum stöðugum.

Margir eiga erfitt með að venjast neðri tanngóm, sérstaklega þeir sem hafa lítinn rima eða slétt gómstæði.

Þá gæti tannplanta verið lausn. Tanplanta má nota í öll hugsanleg  bil sem grunn að stökum tönnum, í stór bil sem undirstöðu fyrir tannbrú og til að festa heilgóm.

 

Sést að maður hafi fengið nýjar gervitennur ?

Það  er mjög viðkvæmt mál hjá mörgum ef kunningjar og vinir uppgötva að tennur hafi verið dregnar út og notaðar eru gervitennur.

Taka má mót af náttúrulegu tönnunum áður en þær eru dregnar úr svo auðveldara er að líkja eftir þeim og hafa gervitennurnar sem líkastar  upprunalegu tönnunm.

Gervitennur eru framleiddar  í svo náttúrulegum litum og formi að það er oftast hægt að finna tennur sem líkjast þíunum eigin. Hafirðu haft sérstaklega dökkar tennur getur þú haft þær dökkar í gervigómunum. Ef þínar eigin tennur eru skakkar, með margar fyllingar, gullinnlegg eða krónu, getur þú fengið það í gervitennurnar.

Gervitennur geta  verið svo eðlilegar, að erfitt er að sjá að um  gervigóm er að ræða .

Ef heildarsvipurinn á að vera fallegur þarf að taka tillit til hreifanleika varanna og tannsmiðurinn þarf að þekkja rammann, broslínuna og sjá hvernig munnholið myndar ramma umhverfis tennurnar. .

 

Ending gervitanna hvílir á notandanum

Hversu vel sem tennurnar eru unnar er það í höndum notandans hversu vel þær endast þegar til lengri tíma er litið Góð hreinsun á munni og gervitönnum og reglulegt eftirlit er ævinlega mikilvægt ekki síst þegar um gervitennur er að ræða.

 

 

Við hreinsun gervitanna skilur á milli tannburstunnar og kemiskrar hreinsunnar. Hægt er að fá sérstaka tannbursta fyrir gervitennur og slímhúð munnsins  sem er nauðsynlegt fyrir daglega ummönnun munns og tanna. Notið alltaf sérstakt tannhreinsiefni sem ætlað er sérstaklega fyrir gervitennur. Notið aldrei venjulegt tannnkrem með slípimassa það skaðar gervitennurnar.

 

Tannburstun

 

Bakteríuskán og munnvatn mynda tannstein sem oft sest á þá fleti sem eru hrjúfir og rispaðir, og ekki nægjanlega vel hreinir. Hægt er að fá sérstakt hreinsiefni (Tannsteinsfjerner) sem leysir upp tannstein og litarefni af gervitönnum. Æskilegt er að nota það einu sinni til tvisvar í viku þá nær tannsteinn og litarefni ekki að festast við gervitennurnar og þær haldast glansandi hreinar.

Nauðsynlegt er að bursta gervitennur og munnhol minnst tvisvar á dag með þar til gerðum hreinsiefnum (Proteserens). Ekki er næjanlegt að leggja gervitennur í bleyti í freyðitöflur. Það getur verið gott samhliða tannburstun , en kemur ekki í staðin fyrir reglulega tannburstun sem þarf að framkvæma minnst tvisvar á dag

Fljótandi handsápa var notuð þegar hreinsiefni fyrir gervitennur voru ófáanleg, en sá tími er liðinn og í dag þarf enginn að hreinsa munn og gervitennur með handsápu, eins og ráðlagt er á heimasíðu tannlæknafélagsins og tannheilsuvef tannverndarráðs.

Í öllum helstu apótekum landsins fást góð hreinsiefni fyrir munn og gervitennur, framleidd úr náttúrulegum efnum eins og aloe vera, tea tree, og fl. Þessi efni eru framleidd í samvinnu við tannheilsufagfólk í Danmörku sem tryggir hámarks árangur, Tea tree olían hefur verið rannsökuð og reynd af hópi vísindamanna og lækna. Olían vinnur á allt að 13 mismunandi bakteríum, 27 sveppum, m.a.Candía Albertcans, Herpes og fl. sem eru algengir kvillar í munni

Náttúrulegar olíur efnanna græða sár, drepa sveppi eru deyfandi , kælandi, sótthreinsandi og örva munnvatnsrennsli. Í efnunum er einnig að finna B- og E- vítamin sem styrkja blóðrennslið og flýta fyrir endurnýjun á slímhimnufrumunum. Þau berast með plastefni tanngómsins til slímhúðar munnsins.

Ef slímhúð munnsins er hrein og gervitönnunum haldið í stöðugu og jöfnu biti með eðlilegu eftirlitiog endurnýjun er það ágæt forvörn til að koma í veg fyrir sjúkdóma í munnholi.

 

Greinarhöfundur :

Íris Bryndís Guðnadóttir, klíniskur tannsmíðameistari og tanntæknir .

Rekur; Aðal-tannsmíðastofuna Hátúni 8 105 Reykjavík

 

 

Kemisk tannhreinsun er gerð með sérstöku sótthreinsiefni sem er í lagi að nota eftir þörfum, en það kemur ekki í staðin fyrir reglulega og góða tannburstun.

 

Dagleg krafa.

Samviskusamleg munn og gervitannahreinsun er mikilvæg bæði fyrir þig og þá sem þú umgengst. Léleg  munnhreinsun  þýðir að matarestar liggja og gerjast í munninum. Afleiðingin getur verið andremma, áblástur , frunsa, sýking og sveppir.

Lágmarkskrafa :

1.Skolið gervitennur og munn eftir hverja máltíð .

2 Hreinsið gervitennurnar minnst einu sinni á dag,t.d sótthreinsibaði.

3. Burstið vandlega slímhúð og gervitennnur minnst einu sinni á dag með þar til gerðum efnum.

Ef þið eruð með tannpart þurfið þið að bursta nátturulegar tennur vel og rétt.

 

 

Gervitennur eru líka tennur sem þarfnast umhyggju

Allir vilja hafa hreinan og heilbrigðan munn.
Það stuðlar að sjálfsvirðingu einstaklingsins og
skiptir þá ekki máli hvort um er að ræða unga eða aldna, tennta eða tannlausa.
Til að svo geti verið þarf að gæta hreinlætis.
Tannsýkla er gerlaskán, hún sest á tennur, bæði fastar tennur og gervitennur.
Tannsýkla veldur algengustu munnsjúkdómum, tannátu, sveppasýkingu tannholds -og slímhúðarbólgum.
Ef ekki er gætt hreinlætis myndast ákjósanleg skilyrði fyrir munnsjúkdóma undir gervitönnunum.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að slímhúðarbólgur finnast hjá um þ.b. 50% þeirra einstaklinga sem nota gervitennur, og að samband er milli illa passandi gervitanna og slímhúðarbólgu.
Einnig eru tengsl milli reykinga og munn- og tannsjúkdóma.
Reykingar lita tennur, valda andremmu og sár í munni gróa seinna og verr.
Slímhúð bólgnar og tennur geta losnað og á það við um bæði gervitennur og náttúrulegar tennur.

Munnvatnið er eitt af mikilvægari forvörnum líkamans, það skolar tennur, slímhúð og ver gegn andremmu og tannskemmdum. Munnþurrkur getur því haft víðtækar afleiðingar, bakteríur, veirur og sveppir eiga auðveldara með að sýkja munnholið.
Erfiðara er að tala, tyggja og halda gervitönnunum á sínum stað.
Slímhúð munnsins þynnist oft með aldrinum, þornar, springur og verður viðkvæm.
Það getur hjálpað að hreinsa gervitennur og munn með góðum hreinsiefnum, sem örva munnvatnsframleiðsluna.
Bakteríuskán og munnvatn mynda tannstein sem oft sest á þá fleti gervitanna sem eru hrjúfir, rispaðir eða ekki nægjanlega vel hreinir. Tannsteinninn er grjótharður og losnar ekki upp með tannsápu. Það þarf því að hreinsa hann með sterkari efnum sem eru sérstakleg ætluð til  að losa upp tannstein. Einnig er hægt að fara til klínísks tannsmiðs og fá tennumar hreinsaðar. Í  tannsteininn sest baktríugróður og litarefni t.d. úr kaffi, te og tóbaki. Fái hann að festast við gervigómana veldur tannsteinninn andremmu og sýkingum í munnholi.
Gervigómamir eiga að vera glansandi, hreinr, mjúkir og sléttir viðkomu.

Nauðsynlegt er að bursta gervitennur og munnhol minnst tvisvar á dag með þar tilgerðum hreinsiefnum. Það stuðlar að hreinu og heilbrigðu munnholi.
Núna þarf enginn að hreinsa munn og gervitennur með handsápu eða ediksýru eins og áður var. Ekki er heldur gott að nota venjulegt tannkrem, í því er slípimassi sem er skaðlegur fyrir  gervitennur.

Í öllum helstu apótekum landsins fást hreinsiefni fyrir munn og gervitennur, þau eru framleidd úr náttúrulegum efnum eins og Aloe Vera, Te-tré, Lavender, kamillu, salvíu, krúsmyntu, japanskri piparmyntu og myrru. Þau hreinsa og sótthreinsa bæði gervitennur og munn, auk þess sem þau örva munnvatnsframleiðsluna.
Te-tré olían hefur verið rannsökuð og reyndum  af hópi vísindamanna og lækna hún vinnur á allt að 13 mismunandi bakteríum, 27 tegundum sveppa, m.a.Candía Albicans, Herpes og fl. sem eru algengir kvillar í munni.
Náttúrulegar olíur efnanna græða sár, drepa sveppi eru deyfandi, kælandi, sótthreinsandi og örva munnvatnsrennslið.
Í efnunum er einnig að fínna B-og E- vítamín sem styrkja blóðrennslið og flýta fyrir endurnýjun á slímhimnufrumunum.
Þau berast með plasteni tanngómsins til slímhúðar munnsins.

Einnig eru fáanleg hreinsiefni í töfluformi sem eru líka ágæt en það má ekki gleymast að alltaf þarf að bursta tennurnar að utan og innan og létt yfir slímhúð munnsins og tungu.

Ef gervitennur eru hreinar og þeim haldið í stöðugu og jöfnu biti með eðlilegu eftirliti og endurnýjun er það ágæt forvörn og kemur í veg fyrir sjúkdóma í munnholi.

Regluleg munn- og gervitannahreinsun er mikilvæg.

Léleg munnhreinsun þýðir að matarleifar liggja og gerjast í munninum, Afleiðingin getur verið andremma, áblástur, frunsa, sýkingar og sveppir.

Sáragómur, strax eftir tanntöku er sú aðferð sem oftast er notuð þegar síðustu tennurnar eru fjarlægðar úr kjálkanum.

Það getur verið erfitt tímabil meðan kjálkarnir eru að taka á sig rétta  lögun, en það tekur um það bil 2-3 mánuði.

Þá er hægt að létta lífið með sérstökum púða.
Hann er framleiddur úr textíl og alginat.
Púðinn  fyllir upp holrúmið sem myndast fljótt eftir tanntökuna.

Tanngómurinn situr stöðugur og veldur síður særindum, meðan beðið er eftir að kjálkarnir rými hæfilega mikið til að hægt sé að endurgera tanngóminn.

Púðann þarf að skipta um daglega og er það auðvelt. Þeir eru seldir í flestum apótekum  30stk í kassa.

Fimm góð ráð:

>Burstið tanngómana vel minnst tvisvar á dag.

>Burstið gómstæðið tvisvar sinnum á dag.

>Skolið gervitennur og munn eftir hverja máltíð.

>Ef ekki er sofið með tennurnar, látið þá hreinsi töflur eða tannsápu í      vatnið til að drepa bakteríugróður.

>Munið árlegt eftirlit hjá klíniskum tannsmið eða tannlækni.

>Lög nr. 109/2000 heimila tannsmiðameistara með klínísk réttindi að taka mát og smíða gervitennur fyrir sína viðskiptavini.

>Þá er neitandinn og tannsmiðurinn í persónulegu sambandi.