Allir vilja hafa hreinan og heilbrigðan munn.
Það stuðlar að sjálfsvirðingu einstaklingsins og
skiptir þá ekki máli hvort um er að ræða unga eða aldna, tennta eða tannlausa.
Til að svo geti verið þarf að gæta hreinlætis.
Tannsýkla er gerlaskán, hún sest á tennur, bæði fastar tennur og gervitennur.
Tannsýkla veldur algengustu munnsjúkdómum, tannátu, sveppasýkingu tannholds -og slímhúðarbólgum.
Ef ekki er gætt hreinlætis myndast ákjósanleg skilyrði fyrir munnsjúkdóma undir gervitönnunum.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að slímhúðarbólgur finnast hjá um þ.b. 50% þeirra einstaklinga sem nota gervitennur, og að samband er milli illa passandi gervitanna og slímhúðarbólgu.
Einnig eru tengsl milli reykinga og munn- og tannsjúkdóma.
Reykingar lita tennur, valda andremmu og sár í munni gróa seinna og verr.
Slímhúð bólgnar og tennur geta losnað og á það við um bæði gervitennur og náttúrulegar tennur.

Munnvatnið er eitt af mikilvægari forvörnum líkamans, það skolar tennur, slímhúð og ver gegn andremmu og tannskemmdum. Munnþurrkur getur því haft víðtækar afleiðingar, bakteríur, veirur og sveppir eiga auðveldara með að sýkja munnholið.
Erfiðara er að tala, tyggja og halda gervitönnunum á sínum stað.
Slímhúð munnsins þynnist oft með aldrinum, þornar, springur og verður viðkvæm.
Það getur hjálpað að hreinsa gervitennur og munn með góðum hreinsiefnum, sem örva munnvatnsframleiðsluna.
Bakteríuskán og munnvatn mynda tannstein sem oft sest á þá fleti gervitanna sem eru hrjúfir, rispaðir eða ekki nægjanlega vel hreinir. Tannsteinninn er grjótharður og losnar ekki upp með tannsápu. Það þarf því að hreinsa hann með sterkari efnum sem eru sérstakleg ætluð til  að losa upp tannstein. Einnig er hægt að fara til klínísks tannsmiðs og fá tennumar hreinsaðar. Í  tannsteininn sest baktríugróður og litarefni t.d. úr kaffi, te og tóbaki. Fái hann að festast við gervigómana veldur tannsteinninn andremmu og sýkingum í munnholi.
Gervigómamir eiga að vera glansandi, hreinr, mjúkir og sléttir viðkomu.

Nauðsynlegt er að bursta gervitennur og munnhol minnst tvisvar á dag með þar tilgerðum hreinsiefnum. Það stuðlar að hreinu og heilbrigðu munnholi.
Núna þarf enginn að hreinsa munn og gervitennur með handsápu eða ediksýru eins og áður var. Ekki er heldur gott að nota venjulegt tannkrem, í því er slípimassi sem er skaðlegur fyrir  gervitennur.

Í öllum helstu apótekum landsins fást hreinsiefni fyrir munn og gervitennur, þau eru framleidd úr náttúrulegum efnum eins og Aloe Vera, Te-tré, Lavender, kamillu, salvíu, krúsmyntu, japanskri piparmyntu og myrru. Þau hreinsa og sótthreinsa bæði gervitennur og munn, auk þess sem þau örva munnvatnsframleiðsluna.
Te-tré olían hefur verið rannsökuð og reyndum  af hópi vísindamanna og lækna hún vinnur á allt að 13 mismunandi bakteríum, 27 tegundum sveppa, m.a.Candía Albicans, Herpes og fl. sem eru algengir kvillar í munni.
Náttúrulegar olíur efnanna græða sár, drepa sveppi eru deyfandi, kælandi, sótthreinsandi og örva munnvatnsrennslið.
Í efnunum er einnig að fínna B-og E- vítamín sem styrkja blóðrennslið og flýta fyrir endurnýjun á slímhimnufrumunum.
Þau berast með plasteni tanngómsins til slímhúðar munnsins.

Einnig eru fáanleg hreinsiefni í töfluformi sem eru líka ágæt en það má ekki gleymast að alltaf þarf að bursta tennurnar að utan og innan og létt yfir slímhúð munnsins og tungu.

Ef gervitennur eru hreinar og þeim haldið í stöðugu og jöfnu biti með eðlilegu eftirliti og endurnýjun er það ágæt forvörn og kemur í veg fyrir sjúkdóma í munnholi.

Regluleg munn- og gervitannahreinsun er mikilvæg.

Léleg munnhreinsun þýðir að matarleifar liggja og gerjast í munninum, Afleiðingin getur verið andremma, áblástur, frunsa, sýkingar og sveppir.

Sáragómur, strax eftir tanntöku er sú aðferð sem oftast er notuð þegar síðustu tennurnar eru fjarlægðar úr kjálkanum.

Það getur verið erfitt tímabil meðan kjálkarnir eru að taka á sig rétta  lögun, en það tekur um það bil 2-3 mánuði.

Þá er hægt að létta lífið með sérstökum púða.
Hann er framleiddur úr textíl og alginat.
Púðinn  fyllir upp holrúmið sem myndast fljótt eftir tanntökuna.

Tanngómurinn situr stöðugur og veldur síður særindum, meðan beðið er eftir að kjálkarnir rými hæfilega mikið til að hægt sé að endurgera tanngóminn.

Púðann þarf að skipta um daglega og er það auðvelt. Þeir eru seldir í flestum apótekum  30stk í kassa.

Fimm góð ráð:

>Burstið tanngómana vel minnst tvisvar á dag.

>Burstið gómstæðið tvisvar sinnum á dag.

>Skolið gervitennur og munn eftir hverja máltíð.

>Ef ekki er sofið með tennurnar, látið þá hreinsi töflur eða tannsápu í      vatnið til að drepa bakteríugróður.

>Munið árlegt eftirlit hjá klíniskum tannsmið eða tannlækni.

>Lög nr. 109/2000 heimila tannsmiðameistara með klínísk réttindi að taka mát og smíða gervitennur fyrir sína viðskiptavini.

>Þá er neitandinn og tannsmiðurinn í persónulegu sambandi.