Íris Bryndís Guðnadóttir. klíniskur tannsmíðameistari og tanntæknir
Hvern einasta dag erum við að slíta tönnunum okkar. Slitið veldur því meðal annars að mjög fáar manneskjur hafa sínar náttúrulegu tennur allt lífið. Þrátt fyrir góða tannhirðu geta sumar tennur hreinlega slitnað upp.
Gervitennur
Að fá gervitennur upplifir fólk mjög mismunandi frá einni manneskju til annarrar. Sumir hafa alls engin vandamál við að venjast gervitönnum en aðrir hafa í stuttan tíma, tal og tyggingarörðugleika .
Það er mikilvægt að gera nauðsynlegar lagfæringar þannig að fólki líði sem best með gervitennurnar og hafa síðan reglulegt eftirlit með tönnunum einu sinni á ári.
Mismunandi er hversu hratt gómurinn rírnar hjá einstaklingi en viðmiðunarregla er að endurnýja gervitennur á u.þ.b. 6-8 ára fresti.
Gangi fólk alltof lengi með gamlar og illa passandi gervitennur getur það haft slæm áhrif á gómstæðið og erfitt getur verið að fá nýjar tennur til að sitja vel.
Yfir 70% 65 ára og eldri eru tannlausir
Margt eldra fólk hefur ekki haft tækifæri til að fá tannviðgerðir á sínum yngri árum. Sérstaklega áttu þeir sem bjuggu úti á landi í erfiðleikum með að fá tannlæknaþjónustu. Það eru því margar ástæður fyrir því að þeir eldri eru tannlausir eða hafa fáar tennur eftir í munninum.
Skólatannlækningar voru aðeins á fáum stöðum og fæstir sem komnir eru yfir 60 ára aldur höfðu reglulega tannskoðun í æsku.
Á að draga út síðustu tennurnar?
Margir halda að þegar aðeins fáar tennur eru eftir í munninum sé best að láta taka þær allar.
Svo þarf ekki að vera. það getur verið til bóta að hafa stakar tennur og fá tannpart, hann situr oft fastari en heilgómur og fyllir ekki eins mikið í munninn.
Ýmsar aðrar lausnir geta komið til greina þegar um skörð eða bil er að ræða t.d. föst tanngervi, krónu og brú.
Til að smíða brú þarf að slípa burtu hluta af náttúrulegum tönnunum sitthvoru megin við skarðið svo hægt sé að brúa bilið. Til að smíða krónu þarf líka að slípa hluta af tönninni. Til að þetta sé hægt verða rætur tannanna að vera nokkuð heilbrigðar svo hægt sé að byggja á þeim. Þessi valkostur er því ekki alltaf til staðar.
Hvað er partgómur?
Ef fjarlægja þarf nokkrar tennur, er partur oft settur í bilið. Partgómur getur verið stálgómur eða plastgómur með mismörgum tönnum á. Það er mikilvægt að hann falli vel að þeim tönnum sem fyrir eru í munninum, að hann virki vel í tyggingu og líti eðlilega út. Partgómur getur verið einföld lausn á náttúrulegu vandamáli.
Er auðvelt að hafa heilgóm?
Flestir eru fljótir að tileinka sér notkun á efrigóm. En oft getur verið vandamál að halda neðrigóm stöðugum.
Efri tanngómurinn sogast oftast fastur upp í gómhvelfinguna. En í neðri góm liggur tanngómurinn laus á rima sem getur verið misgóður til að halda honum. Það er því mikilvægt að tanngómurinn falli vel og sé þannig lagaður að kinnar og tunga hjálpi til við að halda gómnum stöðugum.
Margir eiga erfitt með að venjast neðri tanngóm, sérstaklega þeir sem hafa lítinn rima eða slétt gómstæði.
Þá gæti tannplanta verið lausn. Tanplanta má nota í öll hugsanleg bil sem grunn að stökum tönnum, í stór bil sem undirstöðu fyrir tannbrú og til að festa heilgóm.
Sést að maður hafi fengið nýjar gervitennur ?
Það er mjög viðkvæmt mál hjá mörgum ef kunningjar og vinir uppgötva að tennur hafi verið dregnar út og notaðar eru gervitennur.
Taka má mót af náttúrulegu tönnunum áður en þær eru dregnar úr svo auðveldara er að líkja eftir þeim og hafa gervitennurnar sem líkastar upprunalegu tönnunm.
Gervitennur eru framleiddar í svo náttúrulegum litum og formi að það er oftast hægt að finna tennur sem líkjast þíunum eigin. Hafirðu haft sérstaklega dökkar tennur getur þú haft þær dökkar í gervigómunum. Ef þínar eigin tennur eru skakkar, með margar fyllingar, gullinnlegg eða krónu, getur þú fengið það í gervitennurnar.
Gervitennur geta verið svo eðlilegar, að erfitt er að sjá að um gervigóm er að ræða .
Ef heildarsvipurinn á að vera fallegur þarf að taka tillit til hreifanleika varanna og tannsmiðurinn þarf að þekkja rammann, broslínuna og sjá hvernig munnholið myndar ramma umhverfis tennurnar. .
Ending gervitanna hvílir á notandanum
Hversu vel sem tennurnar eru unnar er það í höndum notandans hversu vel þær endast þegar til lengri tíma er litið Góð hreinsun á munni og gervitönnum og reglulegt eftirlit er ævinlega mikilvægt ekki síst þegar um gervitennur er að ræða.
Við hreinsun gervitanna skilur á milli tannburstunnar og kemiskrar hreinsunnar. Hægt er að fá sérstaka tannbursta fyrir gervitennur og slímhúð munnsins sem er nauðsynlegt fyrir daglega ummönnun munns og tanna. Notið alltaf sérstakt tannhreinsiefni sem ætlað er sérstaklega fyrir gervitennur. Notið aldrei venjulegt tannnkrem með slípimassa það skaðar gervitennurnar.
Tannburstun
Bakteríuskán og munnvatn mynda tannstein sem oft sest á þá fleti sem eru hrjúfir og rispaðir, og ekki nægjanlega vel hreinir. Hægt er að fá sérstakt hreinsiefni (Tannsteinsfjerner) sem leysir upp tannstein og litarefni af gervitönnum. Æskilegt er að nota það einu sinni til tvisvar í viku þá nær tannsteinn og litarefni ekki að festast við gervitennurnar og þær haldast glansandi hreinar.
Nauðsynlegt er að bursta gervitennur og munnhol minnst tvisvar á dag með þar til gerðum hreinsiefnum (Proteserens). Ekki er næjanlegt að leggja gervitennur í bleyti í freyðitöflur. Það getur verið gott samhliða tannburstun , en kemur ekki í staðin fyrir reglulega tannburstun sem þarf að framkvæma minnst tvisvar á dag
Fljótandi handsápa var notuð þegar hreinsiefni fyrir gervitennur voru ófáanleg, en sá tími er liðinn og í dag þarf enginn að hreinsa munn og gervitennur með handsápu, eins og ráðlagt er á heimasíðu tannlæknafélagsins og tannheilsuvef tannverndarráðs.
Í öllum helstu apótekum landsins fást góð hreinsiefni fyrir munn og gervitennur, framleidd úr náttúrulegum efnum eins og aloe vera, tea tree, og fl. Þessi efni eru framleidd í samvinnu við tannheilsufagfólk í Danmörku sem tryggir hámarks árangur, Tea tree olían hefur verið rannsökuð og reynd af hópi vísindamanna og lækna. Olían vinnur á allt að 13 mismunandi bakteríum, 27 sveppum, m.a.Candía Albertcans, Herpes og fl. sem eru algengir kvillar í munni
Náttúrulegar olíur efnanna græða sár, drepa sveppi eru deyfandi , kælandi, sótthreinsandi og örva munnvatnsrennsli. Í efnunum er einnig að finna B- og E- vítamin sem styrkja blóðrennslið og flýta fyrir endurnýjun á slímhimnufrumunum. Þau berast með plastefni tanngómsins til slímhúðar munnsins.
Ef slímhúð munnsins er hrein og gervitönnunum haldið í stöðugu og jöfnu biti með eðlilegu eftirlitiog endurnýjun er það ágæt forvörn til að koma í veg fyrir sjúkdóma í munnholi.
Greinarhöfundur :
Íris Bryndís Guðnadóttir, klíniskur tannsmíðameistari og tanntæknir .
Rekur; Aðal-tannsmíðastofuna Hátúni 8 105 Reykjavík
Kemisk tannhreinsun er gerð með sérstöku sótthreinsiefni sem er í lagi að nota eftir þörfum, en það kemur ekki í staðin fyrir reglulega og góða tannburstun.
Dagleg krafa.
Samviskusamleg munn og gervitannahreinsun er mikilvæg bæði fyrir þig og þá sem þú umgengst. Léleg munnhreinsun þýðir að matarestar liggja og gerjast í munninum. Afleiðingin getur verið andremma, áblástur , frunsa, sýking og sveppir.
Lágmarkskrafa :
1.Skolið gervitennur og munn eftir hverja máltíð .
2 Hreinsið gervitennurnar minnst einu sinni á dag,t.d sótthreinsibaði.
3. Burstið vandlega slímhúð og gervitennnur minnst einu sinni á dag með þar til gerðum efnum.
Ef þið eruð með tannpart þurfið þið að bursta nátturulegar tennur vel og rétt.