Iris Bryndís Guðnadóttir,
Tannsmíðameistari með klínisk réttindi og tanntæknir.
Gervitennur þarfnast umhyggju.
Allir vilja hafa hreinan og heilbrigðan munn. Það stuðlar að sjálfsvirðingu einstaklingsins og skiptir þá ekki máli hvort um er að ræða unga eða aldna, tennta eða tannlausa
Til að svo geti verið þarf að gæta ýtrasta hreinlætis. Tannsýkla er gerlaskán, hún sest á tennur, bæði fastar tennur og gervitennur. Tannsýkla veldur algengustu munnsjúkdómum, tannátu, sveppasýkingu tannholds -og slímhúðarbólgum.
Undir gervigómum eru einnig heppileg skilyrði fyrir munnsjúkdóma að þrífast og dafna,
Rannsóknir hafa leitt í ljós að slímhúðabólgur finnast hjá um þ.b. 50% þeirra einstaklinga sem nota gervitennur, og að samband er milli illa passandi gervitanna og slímhúðabólgu
Einnig eru tengsl milli reykinga og munn- og tannsjúkdóma.. Reykingar lita tennur, valda andremmu og sár í munni gróa seinna og verr. Slímhúð bólgnar og tennur geta losnað. Reykingar eru stærsti áhættuþáttur munnholskrabbameins.
Munnþurrkur getur haft víðtækar afleiðingar, bakteríur, veirur og sveppir eiga auðveldara með að sýkja munnholið þegar munnvatnið er ekki til varnar.
Erfiðara er að tala, tyggja og halda gervitönnunum á sínum stað.
Slímhúð munnsins þynnist oft með aldrinum, þornar springur og verður viðkvæm. Það er því mikilvægt að hreinsa gervitennur og munn með góðum hreinsiefnum sem eru framleidd sérstaklega fyrir þær og skaða ekki glansandi mjúka áferð þeirra .Maxil tann
hreinsiefni halda frá óæskilegum bakteríum og veirum sem geta valdið sýkingu í munnholi.
.
Bakteríuskán og munnvatn mynda tannstein sem oft sest á þá fleti gervitanna sem eru hrjúfir og rispaðir, eða ekki nægjanlega vel hreinir. Vikuleg hreinsun á gervitönnum með Maxil tannsteinshreinsir (Tannsteinsfjerner) er því æskileg , þá nær tannsteinn og litarefni t.d. úr kaffi og tóbaki ekki að festast við gervigómana og þeir haldast glansandi og hreinar.
Nauðsynlegt er að bursta gervitennur og munnhol minnst tvisvar á dag með Maxil gervitannahreinsir (Proteserens)
Í dag þarf enginn að hreinsa munn og gervitennur með handsápu eins og áður var. En í venjulegu tannkremi er slípimassi sem er skaðlegur fyrir gervitennur.
Í öllum helstu apótekum landsins fást Maxil hreinsiefni fyrir munn og gervitennur, þau eru framleidd úr náttúrulegum efnum eins og alloe vera, te tré, lavendil, kamillu, salvíu, krúsmyntu, japanskri piparmyntu og myrru. Maxil hreinsar og sótthreinsar bæði gervitennur og munn. Maxil er framleitt í samvinnu við tannheilsufagfólk í Danmörku það tryggir hámarksárangur,. Te-tré olían hefur verið rannsökuð og reynd af hópi vísindamanna og lækna hún vinnur á allt að 13 mismunandi bakteríum, 27 sveppum, m.a.Candía Albicans, Herpes og fl. sem eru algengir kvillar í munni
Náttúrulegar olíur efnanna græða sár, drepa sveppi eru deyfandi, kælandi, sótthreinsandi og örva munnvatnsrennsli. Í efnunum er einnig að finna B- og E- vítamín sem styrkja blóðrennslið og flýta fyrir endurnýjun á slímhimnufrumunum. Þau berast með plastefni tanngómsins til slímhúðar munnsins.
Ef gervitennur eru hreinar og þeim haldið í stöðugu og jöfnu biti með eðlilegu eftirliti og endurnýjun er það ágæt forvörn og kemur í veg fyrir sjúkdóma í munnholi.
Samviskusamleg munn og gervitannahreinsun er mikilvæg bæði fyrir þig og þá sem þú umgengst, Léleg munnhreinsun þýðir að matarleifar liggja og gerjast í munninum, Afleiðing getur verið andremma, áblástur, frunsur , sýkingar og sveppir.
Lámarkskrafa :
1.Skolið gervitennur og munn eftir hverja máltíð,
2, Burstið vandlega slímhúð og gervitennur tvisvar á dag með Maxil hreinsiefnum,
Lög nr 109/2000 heimila tannsmiðameistara með klínisk réttindi að taka mát og smíða gervitennur fyrir sína viðskiptavini . Þá eru gervitannanotandinn og tannsmiðurinn í persónulegu sambandi án milliliðs.